Handbolti

Snorri: Mótið er vonbrigði

Arnar Björnsson í Doha skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson var svekktur með tapið gegn Dönum.  Hann segir að liðið hafi ekki spilað vel í mótinu og vonar að Íslendingur verði heimsmeistari.

Hvenær í leiknum sástu möguleikann á að vinna Danina hverfa?

„Hann minnkaði bara með hverri mínútunni sem leið. Þetta var hrikalega léleg byrjun. Ég veit ekki hvað er hægt að segja, þetta er búið að vera gegnumgangandi allt mótið.  Það segir sig sjálft að lenda 5-6 mörkum undir í byrjun gegn einu af bestu liðum heims er ekki ávísun á gott.  Heilt yfir erum við að spila á móti miklu betra liði í dag, liði sem spilar betur en við á öllum sviðum handboltans."    

Má ekki segja að þið hafið fengið á baukinn hjá þremur liðum sem þið hafið mætt á þessu móti?

„Það er engin spurning    og heilt yfir höfum við verið að spila illa og mótið er vonbrigði. Það er ekki hægt að tala öðru vísi um það“.

Nú fengið þið tækifæri til að velta þessari byrjun í leikjum á mótinu fyrir ykkur, var aldrei hægt að laga það?

„Greinilega ekki en auðvitað var talað um það. Við erum meðvitaðir um það hvernig leikirnir hafa byrjað hjá okkur en við höfum ekki fundið lausnir á því. Því get ég ekki sagt þér af hverju það var eða hvernig við hefðum átt að gera betur. Það var ekki planið að byrja leikina svona illa en eitthvað var það sem gerðist að þetta fór svona. Þegar við gerum það á móti góðu liðunum að þá fer það bara á einn veg."

Nú er þetta engin endastöð, þið eruð í miðri baráttu um að komast á næsta mót. Það er enginn bilbugur í ykkur?

„Nei, nei en menn eru náttúrulega ekkert hátt uppi þegar menn eru dottnir út úr heimsmeistaramóti og kannski ekki verið að spila vel. Staðan í riðlinum í Evrópukeppninni er ekkert góð en hún er ekki hræðileg og það er því verðugt verkefni sem bíður liðsins."

Af þeim liðum sem þið hafði spilað gegn, hvert er það besta?

„Ég veit það bara ekki. Ég vona bara að Íslendingur verði heimsmeistari“.    


Tengdar fréttir

Björgvin Páll: Súrt að falla úr leik á móti Dönum

Björgvin Páll Gústavsson varði tuttugu skot á móti Dönum í kvöld og var enn einu sinni besti leikmaður mótsins. Björgvin Páll var veikur í gær og um tíma óvíst hvort hann gæti spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×