Lífið

Snoop Dogg skýtur Trump í hausinn og forsetinn svarar fullum hálsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrr í þessari viku kom út tónlistamyndband frá sveitinni BADBADNOTGOOD og Snoop Dogg við lagið Lavender og hefur myndbandið vakið gríðarlega athygli.

Ronald Klump er karakter myndbandinu og er hann forseti Bandaríkjanna. Mjög greinilega er verið að tala um Donald Trump, hinn raunverulega forseta Bandaríkjanna.

Í myndbandinu skýtur Snoop Klump í hausinn og hefur það tiltekna atriði vakið sérstaka athygli um heim allan, svo mikla að Trump svarar Snoop á Twitter í dag.

Þar veltir hann því fyrir sér hvað hefði gerst ef Barack Obama hefði verið í myndbandinu í staðin fyrir hann.

Hér að neðan má sjá svar Donald Trump:

CNN fjallar um málið Hér að neðan má síðan sjá myndbandið í heild sinni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×