Lífið

Snoop Dogg orðinn hvítur

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Rapaprinn klæðir sig upp sem karakterinn Todd
Rapaprinn klæðir sig upp sem karakterinn Todd Vísir/Getty
 Bandaríski rapparinn Snoop Dogg, einnig þekktur sem Snoop Lion og Snoopzilla, birti í vikunni myndbönd á Instagram síðu sinni þar sem hann hefur farið í gervi hvíts karlmanns með ljósa hárkollu og stór gleraugu.

Karakterinn, sem hann kallar Todd, segist vera stofnandi síðunnunnar whiteguysconnect.com og er hún ætluð hvítum karlmönnum í leit að kvenfólki sem vill skemmta sér.

Todd segist sjálfur hafa gaman að því að hekla, fara í paintball og hlusta á ljóðaupplestur. Heimasíðan sjálf virðist vera uppspuni en spurning er hvort þetta nýja alter-egó rapparans sé hluti af auglýsingu fyrir nýja plötu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×