Lífið

„Svo það sé alveg á hreinu, þá er ég ekki freðinn“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ólíklegir vinir; Snoop Dogg og Martha Stewart
Ólíklegir vinir; Snoop Dogg og Martha Stewart
„Svo það sé alveg á hreinu, þá er ég ekki freðinn. En sá sem kom með hugmyndina að þessum þætti, hann hlýtur að hafa verið það,“ segir rapparinn Snoop Dogg í kynningarmyndbandi fyrir nýja þætti sem hann stýrir, ásamt Mörthu Stewart: Martha & Snoop's Potluck Dinner. Myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Umsjónarmenn þáttanna, sem eru eins ólík og hugsast getur, eiga það eitt sameiginlegt að elska mat. Í þættinum fá þau til sín gesti á borð við Seth Rogen, Rihönnu og 50 cent, svo einhverjir séu nefndir.

Martha og Snoop fara reglulega yfir strikið og er ekkert heilagt í þessum geggjuðu matarboðum þar sem boðið er upp á hressilegar samræður og veglegt hlaðborð.

Martha & Snoop's Potluck Dinner hefja göngu sína á Stöð 2, föstudaginn 3.mars, og eru í opinni dagskrá strax að loknum fréttum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×