Innlent

Snjókoma í borginni

Gissur sigurðsson skrifar
vísir/anton

Snjókoma var víða á suðvestanverðu landinu í nótt og í morgunsárið var til dæmis þæfingsfærð á höfuðborgarsvæðinu, þótt hvergi væri ófært.

Snjóruðningstæki hófu mokstur undir morgun á öllum helstu umferðaræðum og strætisvagnaleiðum, en hliðargötur verða ekki hreinsaðar.

Áður en snjórinn tók að falla hafði víða myndast ísing þannig að akstursskilyrði eru víða viðsjárverð.  Mikilvægt er að hreinsa vel rúður og ljós á bílum áður en haldið er af stað við þessar aðstæður.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×