Innlent

Snjóflóðavarnarhlið sett upp í Hlíðarfjalli

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Slysavarnakonurnar Sólveig Skjaldardóttir, Ásdís Helgadóttir, Helga Halldórsdóttir og Halldóra Skúladóttir afhentu hliðið sem Guðmundur Karl Jónsson tók við fyrir hönd Skíðastaða í Hlíðarfjalli.
Slysavarnakonurnar Sólveig Skjaldardóttir, Ásdís Helgadóttir, Helga Halldórsdóttir og Halldóra Skúladóttir afhentu hliðið sem Guðmundur Karl Jónsson tók við fyrir hönd Skíðastaða í Hlíðarfjalli. Mynd/Aðsend
Slysavarnadeild Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Akureyri afhenti skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli snjóflóðavarnahlið um liðna helgi. Hliðið var sett upp við ofan við Stromplyftuna, efstu skíðalyftu svæðisins.

Þaðan halda skíðamenn gjarnan af stað ætli þeir að skíða utan hefðbundinna brauta fjallsins. Í hliðinu er sjálfvirkur búnaður sem lætur skíða- og göngufólk vita hvor snjóflóðaýlar þeirra séu í lagi eða rétt stilltir, ásamt því að veita almennar upplýsingar um snjóflóðavarnir.

Snjóflóðaýlir er mikilvægt öryggistæki sem sífellt fleira göngu, skíða og sleðafólk ber á sér. Ýlirinn sendir frá sér útvarpsbylgjur sem auðveldar leit að fólki í snjóflóðum. Við afhendinguna sagði Halldóra Bjarney Skúladóttir, formaður Slysavarnadeildarinnar á Akureyri að hliðið væri veigamikill þáttur í að auka vitund fólks um mikilvægi snjóflóðaýla meðal þeirra sem stunda fjallamennsku á vetrum.

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir að hliðið og aukin notkun snjóðflóðaýla auki til muna öryggi þeirra sem vilja ganga ofan skíðasvæðisins og skíða utan troðinna brauta.

Hliðið í Hlíðarfjalli er annað sinnar tegundar sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setur upp nú í vetur. Þriðja hliðið í Eyjafirði verður sett upp í Glerárdal sem er vinsælt útvistasvæði, bæði meðal göngu- og vélsleðafólks. Innan tíðar verður snjóflóðavarnahlið sett upp í Landmannalaugum en það svæði nýtur mikilla vinsælda meðal vélsleðafólks. Þá verða fljótlega sett upp hlið við skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×