Innlent

Snjóflóðahætta á Súðavíkurhlíð

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Varúðarstigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Súðavíkurhlíð vegna slæmrar veðurspár.
Varúðarstigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Súðavíkurhlíð vegna slæmrar veðurspár. Vísir/TLT
Varúðarstigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Súðavíkurhlíð vegna slæmrar veðurspár. Það felur í sér að fylgst verður vel með þróun veðurs og úrkomu og frekari ákvaðanir teknar samkvæmt því, að því er segir á síðu lögreglunnar á Vestfjörðum.

Lögreglan hvetur fólk til þess að fylgjast með Facebook-síðu sinni en gera má ráð fyrir að smáskilaboð verði send til þeirra sem eru á norðanverðum Vestfjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×