Innlent

Snjóalög víða varasöm á sunnanverðum Vestfjörðum

Atli Ísleifsson skrifar
Enn er þó óvissustig vegna snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum og verður það endurskoðað á morgun.
Enn er þó óvissustig vegna snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum og verður það endurskoðað á morgun. Mynd/Gísli
Óvissustigi á norðanverðum Vestfjörðum og hættustigi á sunnanverðum Vestfjörðum hefur verið aflétt. Enn er þó óvissustig vegna snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum og verður það endurskoðað á morgun.

Í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að hvöss austanátt hafi verið á miðvikudag með mikilli snjókomu á sunnanverðum Vestfjörðum. „Á fimmtudag var hvöss NA-átt og úrkoma. Aðfaranótt fimmtudags snjóaði svo mjög mikið í norðan átt.

Mörg snjóflóð féllu í veðrinu meðal annars nokkuð stór snjóflóð á Patreksfirði, Mikladal og Rauðasandi.

Samkvæmt snjóflóðavakt Veðurstofunnar er því mikill snjór til fjalla, sérstaklega í hlíðum sem snúa móti suðri og vestri. Gera verður ráð fyrir að óstöðugleiki geti verið í snjóþekjunni. Þeir sem eru á ferð í fjallendi ættu því að gæta sérstakrar varúðar við þessar aðstæður.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×