Viðskipti erlent

Snjallúrsala dregst saman um helming

Sæunn Gísladóttir skrifar
Apple Watch er vinsælasta snjallúrið í dag.
Apple Watch er vinsælasta snjallúrið í dag. Skjáskot/Apple
Sendingar á snjallúrum drógust saman um 51,6 prósent milli ára samkvæmt nýjum tölum frá markaðsgreiningaraðilanum IDC.

Apple Watch var ennþá vinsælasta snjallúrið á þriðja ársfjórðungi og voru milljón slík úr seld á þriðja ársfjórðungi 2016. Á sama tíma í fyrra voru hins vegar 3,9 milljón eintök seld. Af fimm stærstu snjallúrvörumerkjunum var einungis vöxtur milli ára hjá Garmin. Vert ber að nefna að á þriðja ársfjórðungi voru nýjar útgáfur af snjallúrunum, sem oftast seljast vel, ekki komin í sölu.

Jitesh Ubrani hjá IDC segir í samtali við BBC að tölurnar sýni þó lítinn áhuga neytenda á vörunni. „Það er orðið ljóst, í dag, að snjallúr eru ekki fyrir alla," sagði hann. „Það er mikilvægt að varan hafi skýran tilgang, því eru margir sölumenn að einblína á nytsemi úrsins við íþróttaiðkun."


Tengdar fréttir

Swatch að þróa snjallúr

Swatch er í samstarfi við Visa að þróa snjallúr sem hægt er að borga með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×