Verkefni Erics safnaði milljón dollurum á rúmum sólarhring. Á myndinni má sjá Pebble "snjallúrið.“
MYND/PEBBLE
Kanadískur athafnamaður hefur fengið rúmar 380 milljónir króna í frjálsum fjárframlögum vegna nýstárlegs armbandsúrs sem hann hefur þróað síðustu ár.
Eric Migicovsky notaði vefsíðuna Kickstarter til að fjármagna verkefnið. Á vefsíðunni geta frumkvöðlar kynnt verkefni sín og áætlanir - almenningur getur síðan styrkt verkefnin með fjárframlögum.
Verkefni Erics safnaði milljón dollurum á rúmum sólarhring og hefur í heild safnað rúmum 3 milljónum dollara. Upphaflegt markmið Erics var að safna 10 þúsund dollurum.
Armbandsúrið er kallað Pebble og hefur verið í þróun síðustu þrjú ár. Skjár úrsins er úr stafrænu bleki - rétt eins og skjár spjaldtölvunnar Kindle sem þróuð er af Amazon.
Pebble tengist snjallsímum þráðlaust og er það hugsað sem framlenging á notendaviðmóti þeirra. Þannig munu notendur geta stjórnað tónlistarskrám sem geymdar eru í símanum, lesið tölvupóst og jafnvel mælt hraða og vegalengdir.
Orkunýting úrsins er afar lítil og þurfa notendur aðeins að hlaða úrið einu sinni í viku.
Ekki er vitað hvenær Pebble fer í framleiðslu en Eric vonast til að ljúka hönnun þess á næstu mánuðum.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Apple er áfram verðmætasta fyrirtæki heimsins en verðmæti þess er 185 milljarðar dollara. Þetta kemur fram í árlegum lista sem unninn er af WPP og Millward Brown. Apple var einnig efst á listanum í fy...
Meira
Actavis hefur fest kaup á írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott. Kaupverðið var 5 milljarðar dollara eða um 617 milljarðar kr. og verður það greitt í formi hlutafjár í sameinuðu félagi Actavis og War...
Meira
Tæknifyrirtækið Yahoo! mun í dag staðfesta kaup sína á Tumblr, vinsælasta bloggkerfi veraldar. Með þessu freistar nýr forstjóri Yahoo! að endurreisa forna frægð fyrirtækisins sem barist hefur í bökkum...
Meira
Kínverjar hafa dregið úr álframleiðslu sinni á þessu ár um eina milljón tonna og munu sennilega draga úr henni um 2 milljónir tonna fyrir árið 2015. Ástæðan er verðlækkanir á heimsmarkaðsverði á áli o...
Meira
Hópur tölvuþrjóta í Sýrlandi stóð fyrir árás á vefsíðu Financial Times í vikulokin. Þeim tókst að brjóta sér leið inn á eina af bloggsíðum blaðsins og fleiri samskiptasíður þess.
Meira
Þýskaland og Frakkland, stærstu hagkerfi evrusvæðisins, viðurkenna að samstarf þeirra sé lykillinn að því að ráða fram úr erfiðri stöðu evrulandanna. Ráðamenn eru enn ósammála um forgangsröðun verkefn...
Meira
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í dag að Færeyingar hefðu eins mánaðar frest til að svara ESB um hvort þeir ætluðu að endurskoða ákvörðun sína um stóraukinn kvóta úr síldarstofninum í Nor...
Meira
Sala á nýjum bílum í Evrópu jókst um 1,8% milli ára í apríl s.l. Þetta er í fyrsta sinn síðan haustið 2011, eða undanfarna 18 mánuði, sem slíkt gerist.
Meira
Danskir 1.000 króna seðlar mynda nær helming þess seðlamagns sem er í umferð í landinu. Sérfræðingar segja þetta merki um glæpahagkerfi í landinu og mikla svarta atvinnustarfsemi.
Meira
Ímynd FIH bankans meðal danskra stjórnenda er ein sú versta meðal danskra fyrirtækja. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum Berlingske Tidende um hvaða fyrirtæki í Danmörku njóta mest álits meðal st...
Meira
Í nýrri úttekt frá OECD um bilið milli ríkra og fátækra meðal aðildarþjóða sinna kemur fram að Ísland er í hópi þeirra þjóða þar sem þetta bil er einna minnst. Aðrar þjóðir í þeim hópi eru Noregur, Da...
Meira
Húsleitir voru gerðar í höfuðstöðvum þriggja af stærstu olíufélögum Evrópu í gærdag. Þessi olíufélög og fleiri eru grunuð um að hafa stjórnað heimsmarkaðsverði á olíu með víðtæku samráði undanfarin 10...
Meira
Actavis, Inc. hefur í fyrsta sinn komist á svo kallaðan Fortune 500 lista, sem gefinn er út af tímaritinu Fortune í Bandaríkjunum. Á listanum eru 500 stærstu bandarísku fyrirtækin, þegar miðað er við ...
Meira