Viðskipti erlent

Snjallsímaframleiðendur slást um Kína

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Hagnaður Samsung dróst saman um 60,1 prósent á þriðja ársfjórðungi og var 3,9 milljarðar dala, eða um 475 milljarðar króna. Samkvæmt Reuters fréttaveitunni er þetta minnsti hagnaður félagsins í þrjú ár og er til kominn vegna minnkandi sölu fyrirtækisins á snjallsímum.

Til að bæta stöðuna, hafa forsvarsmenn tæknifyrirtækisins litið til Kína, þar sem innlendi framleiðandinn Xiaomi Inc felldi Samsung úr efsta sætinu þar í landi.

Greinendur sem Reuters hafa rætt við segja Samsung símana ekki hafa verið nægilega ódýra miðað við síma Xiaomi og Lenovo, sem hafa verið að auka sölutölur sinar í landinu. Samsung hefur nú gefið út tvo nýja síma sem ætlað er að ná forskoti fyrirtækisins aftur.

Þá er gert ráð fyrir að fyrirtækið muni senda út enn fleiri ný tæki á næstunni. Forsvarsmenn fyrirtækisins viðurkenndu nýverið að þeir hafi verið of lengi að bregðast við breyttum samkeppnisaðstæðum og sögðust ætla að gefa út fleiri týpur.

Heimsmarkaður snjallsíma keyrir nú á ódýrustu símunum og greinendur Reuters segja fyrirtækin vera að keppa við að ná botninum. Nema Apple sem stýrt getur sínu eigin verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×