Matur

Sniðugar uppskriftir frá Sollu

Solla á Gló deilir með lesendum Vísis nokkrum sniðugum uppskriftum.

Doppóttar lummur

2 dl spelt

½ dl tröllahafrar

½ dl möluð chiafræ (möluð í kryddkvörn)

1 tsk. vínsteinslyftiduft

1 tsk. vanilla

½ tsk. kanill

¼ salt

2½ dl möndlumjólk eða hrísmjólk

2 msk. kókosolía eða önnur góð olía

2 msk. útbleytt chiafræ (¼ fræ, ¾ vatn)



Hrærið öllu saman í skál eða í hrærivél, látið standa í 5-10 mín áður en byrjað er að baka. Ausið deiginu í litlum skömmtum á heita pönnu og steikið þar til gyllt á hvorri hlið.

Vísir/Getty

Grænkálssnakk

Dressing:

2 dl kasjúhnetur

1½ dl vatn

2-3 msk. sítrónusafi

1 msk. næringarger

2 tsk. laukduft

1 stk. hvítlauksrif, pressað 

2-3 döðlur

smá biti ferskur chili pipar

Snakk: 

300 g grænkál

Setjið kasjúhneturnar í blandara, bætið vatninu út í og blandið í svona hálfa mínútu Bætið restinni af uppskriftinni í blandarann og blandið þar til þetta er orðið silkimjúkt. Skolið og þerrið kálið, og rífið það af stönglinum (látið stöngulinn á safnhauginn eða geymið hann í græna djúsinn), tætið svo kálið niður í passlega bita. Veltið upp úr dressingu, raðið á bökunarpappír í ofnskúffu og þurrkið við 170°C + blástur þar til kálið er orðið brakandi þurrt.

Vísir/Getty

Möndlunúttella

2 bollar ristaðar möndlur (ristaðar í ofni við 175°C í 15 mín)

1½ msk. kakóduft

1½ msk. kókospálmasykur

smá salt

1 msk. kókosolía ef þarf



Byrjið á að setja möndlurnar í kraftmikinn blandara/matvinnsluvél og breytið þeim í smjör*.

Bætið restinni af uppskriftinni út í og klárið að blanda.

*Getur verið gott að stoppa nokkrum sinnum og skafa niður með hliðunum. Þetta getur tekið allt að 10 mínútur. Má setja smá olíu (ólífuolíu eða aðra kaldpressaða góða) til að hjálpa til við að breyta möndlunum í „smjör“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×