Sniðugar nauðganir

Fréttablaðið Aðsendar greinar 28. nóvember 2011 09:00
Sæunn Ólafsdóttir B.A. í spænsku og bókasafnsfræði.
Sæunn Ólafsdóttir B.A. í spænsku og bókasafnsfræði.
Sæunn Ólafsdóttir skrifar:
Fyrir mörgum árum var ég skiptinemi við háskóla í Madríd þar sem ég bjó í tæpt ár. Eitt sinn var mér boðið á kynningarkvöld á skemmtistað í miðborginni þar sem ætlunin var að skiptinemarnir hittust og kynntust betur. Allir fengu afhenta stóra límmiða með nafni og heimalandi til að líma á bringuna. Við drukkum og ræddum heimsmálin, dönsuðum og skemmtum okkur þangað til fleira fólk tók að fylla skemmtistaðinn. Hópurinn minn hafði tvístrast en ákveðið að hittast á bar neðar í götunni. Ég ákvað að bregða mér fyrst á salernið. Það var upptekið. Á meðan ég beið á ganginum fóru framhjá mér þrír menn í hóp. Sá fremsti þeirra gjóaði á mig augunum þegar hann gekk hjá, staðnæmdist og sneri aftur til mín.

-Islandia? spurði hann og studdi vísifingri á límmiðann á bringunni á mér.
Ég kinkaði kolli. Hann þagði og starði glottandi á mig svolitla stund. Félagar hans stóðu þögulir hjá.

-Finnst þér gott að ríða? spurði hann á spænsku. Ég stirðnaði. Gat verið að ég hefði heyrt rétt? Var hann virkilega að spyrja að þessu? Ég svaraði engu. Vinirnir flissuðu.

- Finnst - þér - gott - að - ríða? spurði hann aftur. Hann glotti ekki lengur. Hann talaði hátt og ógnandi og lagði áherslu á hvert orð með því að pota í bringuna á mér. Ég skrælnaði í munninum af stressi. Hann minnti mig á hákarl.

Ég ákvað að bíða ekki lengur eftir salerninu en snerist á hæli í leit að félögum mínum sem reyndust hvergi sjáanlegir. Hákarlinn elti í hæfilegri fjarlægð og vinum hans fjölgaði um tvo. Hann benti þeim á mig. Þegar hann sá mig horfa í átt til þeirra greip hann um klofið á sér og fór hamförum í leikrænum tilburðum. Vinum hans fannst hann brjálæðislega fyndinn. Í örvæntingu æddi ég á milli hæða í leit að kunnuglegu andliti. Hákarlarnir eltu. Einn birtist skyndilega fyrir framan mig og sagði eitthvað um brjóstin á mér. Annar setti vísifingur og löngutöng upp að andlitinu og rak tunguna á milli. Ég komst að þeirri óhugnanlegu niðurstöðu að vinir mínir hefðu farið án mín. Ég yrði að sæta lagi. Þegar ég missti hákarlana úr augsýn eitt augnablik stökk ég út um dyrnar og hraðaði mér á barinn neðar í götunni. Ég var með hjartslátt og ég skalf. Þetta var ekki löng ganga, en þegar ég var hálfnuð heyrði ég kallað á eftir mér.

- Hei! Islandia! Stoppaðu! Við þurfum að tala við þig! Ég leit við og sá að hákarlarnir voru komnir út. Ég tók á sprett og hljóp sem fætur toguðu niður þrönga götuna. Þeir nálguðust hratt en ég hafði sem betur fer forskotið sem þurfti. Ég komst inn á barinn áður en þeir náðu mér. Máttlaus og skjálfandi af ótta lyppaðist ég niður á stól hjá nokkrum vinum mínum sem voru uppteknir í sínu skvaldri. Hákarlarnir eltu mig ekki inn, en ég get ekki hugsað til enda hvað hefði gerst ef þeir hefðu náð mér.

Þetta löngu liðna atvik rifjaðist upp fyrir mér þegar ég varð vör við umræðu um umdeilda fésbókarsíðu sem bar einmitt yfirskriftina: „You know she"s playing hard to get when you‘re chasing her down an alleyway.“ Þar höfðu nauðgarar og nauðgaravinir fundið sér athvarf. Fésbók þráaðist við að loka síðunni því hún var bara grínsíða. Það er nefnilega það. Ef mennirnir sem eltu mig þarna um árið hefðu verið spurðir hvað þeim hefði gengið til með því að atast svona í mér er ég einmitt nokkuð viss um að þeir hefðu sagst vera að grínast. Og þeir hefðu auðveldlega komist upp með þá skýringu. „Strákar verða alltaf strákar“ er viðkvæðið, þeir yppta öxlum og halda áfram að grínast. Og einhvers staðar fengu þeir þá hugmynd að þetta væri í lagi.

Nýlega kom út ferðahandbók þar sem íslenskum konum er enn á ný lýst sem „lauslátum yfir meðallagi“ og gefur höfundur karlkyns ferðamönnum vafasöm ráð um hvernig megi stofna til skyndikynna með þeim. Þar skipaði höfundur sér í fjölmennan hóp manna sem hafa látið sér detta í hug að misnota og græða peninga á frjálslyndu viðhorfi íslenskra kvenna til kynlífs.

Menning okkar hefur á furðulegan hátt hrært saman hugmyndum um skemmtun, kynlíf, ofbeldi og konur í óskiljanlegan graut sem síðan er óspart notaður til að selja vörur og afþreyingu. Grautnum er smurt yfir félagslegu mörkin sem skilja rétt frá röngu svo að enginn veit lengur hvar gamanið endar og ofbeldið byrjar.

Konur njóta kynlífs. Um það þarf enginn að efast. Kynfrelsi kvenna er hins vegar þeirra einna að ráðstafa. Konur njóta kynlífs á sínum eigin forsendum, ekki forsendum þeirra sem vilja selja eitthvert drasl. Að markaðssetja konur líkt og hluti eða veiðibráð, sneydda sjálfstæðum vilja eða neitunarvaldi, er ekki einungis aðför að kynfrelsi þeirra. Það er beinlínis stórhættulegt.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

"Maladomestica 10 punktar“

Blaðamaður hringdi og sagðist hafa fyrir því heimildir að á morgun (23. feb. '12), birtist...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Skulda- eða evrukreppa?

Einkenni núverandi heimskreppu er erfið skuldastaða einstakra ríkja. Ekki er hægt að tengj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Er hægt að færa niður skuldir almennings án þess að nokkur beri kostnaðinn?

Kröfur um almenna niðurfellingu skulda eru háværar og reglulega koma ýmsir fram sem telja ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Ofurskattur á samgöngum

Á dögunum birti Capacent niðurstöður úr könnun um ferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins er...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Dagur hinna slæmu "túrverkja“

Ég vakna upp við skerandi sársauka. Ég teygi mig eftir verkjatöflunum og skelli í mig tvei...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Þjóð of heimsk fyrir lýðræðið

Áberandi er andstaða stjórnarandstöðunnar við frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnars...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Samkeppnislög skipta miklu máli á flugmarkaði

Þann 9. febrúar sl. féll dómur í Hæstarétti Íslands þar sem staðfest er að Icelandair hafi...  

Meira
Aðsendar greinar 23. feb. 2012 06:00

Kyn og loftslagsbreytingar, verkefni í Úganda

Áhrif loftslagsbreytinga verða líklega meiri á konur en karla, ekki síst í fátækari ríkjum...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 13:48

Sagan af Jóni og Ingjaldi

Ötull maður sem hét Jón bjó á ónefndum stað á landinu. Hann var iðinn og duglegur á allan ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 12:59

Heimilin í heljargreipum

Ríkisstjórn Íslands færði kröfuhöfum, fjárglæframönnum, vogunarsjóðum og hrægömmum, heimil...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 11:00

Hatur og málfrelsi

Ég er einn þeirra sem er orðinn leiður á því að sitja undir því að Snorra í Betel finnist ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Hvað tefur, Ögmundur?

Í nýjasta hefti Læknablaðsins er einkar áhugaverð grein eftir Þórodd Bjarnason og Svein Ar...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Ónóg vernd gegn mismunun

Í fjórðu skýrslu ECRI um Ísland, sem kom út í vikunni, kemur fram að ECRI telur að 65. gre...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Við mótum framtíðina

Merki eru um að heldur sé að lifna yfir íslenskum þjóðarbúskap. Tvísýnt er þó um hversu vi...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Nýtingarsamningar sem framtíðarleið

Hér fer á eftir tillaga að leið sem er ætlað að skapa jafnræðisgrundvöll fyrir útgerðarfyr...  

Meira
Aðsendar greinar 22. feb. 2012 06:00

Skráargatið

Flestir eru sammála um að heilsan er ein aðalforsenda góðra lífsgæða. Ánægjulegt er að fyl...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 15:39

Hvernig getur "Liberal Democrats" lagt grunn að siðbót fyrir íslenskt samfélag

Komið hefur fram áður að „Liberal Democrats" standi fyrir lýðfrelsi eða þáttökurétt ...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 14:15

Náttúruminjasafn Íslands

Fyrir skömmu sendi Ríkisendurskoðun frá sér skýrslu u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Hverjir mega stela?

Síðastliðinn fimmtudag birtist í Fréttablaðinu grein eftir Helga Jóhannesson hæstaréttarlö...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Af hverju læra börn ekki að lesa?

Svarið er þversagnakennt: Af því að þau lesa ekki nóg. Sökin liggur víða. Hjá skólum að þv...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Guðríður nýtur mikils trausts

Fróðlegt hefur verið að fylgjast með atburðarás og pólitískri umræðu síðan meirihlutinn í ...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Af fæðuöryggi Íslendinga og byggðarsjónarmiðum

Í Fréttablaðinu 27. janúar sl. heldur efnahags- og viðskiptaráðherra því fram að ekki sé r...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Gegnheilt orðspor er ómetanlegt

Hver holskeflan af annarri hefur riðið yfir fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og einstakl...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Lífeyriskerfið þarf að endurmeta

Róttækrar hugsunar er þörf til að endurskipuleggja lífeyriskerfi landsmanna. Í ljósi reyns...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Staða lánþega er skýr

Það er eitt atriði í nýföllnum vaxtadómi sem skiptir öllu máli varðandi túlkun á heildarni...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Þjóðleikhúsið eða Skjár Einn?

Í Fréttablaðinu 6. febrúar sl. var sagt frá því í forsíðufrétt, að haustið 2009 hafi fullt...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Nýr spítali – já takk!

Á undanförnum dögum og vikum hefur töluvert verið rætt og ritað um nýjan Landspítala við H...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Ávísun á tóman hatt

Fjölmiðlar hafa nýlega fjallað um lán sem íslenskir bankar veittu til kaupa á eigin bréfum...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Unglingar í Reykjavík eiga það besta skilið

Unglingar í Reykjavík sýna okkur á hverjum degi hvað þeir eru frábærir. Þeir bæta sig í ná...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Sex þúsund tonn af sælgæti – Sex þúsund tonn af grænmeti

Í landskönnun á mataræði 2010 - 2011, sem Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Háskóli Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 21. feb. 2012 06:00

Alvarlegar rangfærslur Sóttvarnarlækna um eiturefni í bóluefnum

Í grein í Fréttablaðinu sem birtist þann 27. desember sl. fara þeir Haraldur Briem og Þóró...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 11:24

Annars konar upplýsing

Nú nýlega var Tryggva Má Sæmundssyni framkvæmdastjóra ÍBV, Elliða Vignissyni bæjarstjóra V...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:15

Kaup á vændi af barni

Dómur Héraðsdóms Vesturlands frá 9. febrúar síðastliðnum, þar sem maður er sakfelldur fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:15

Nei Jóhanna

Eitt helsta viðfangsefni ríkisvaldsins allt frá hruni hefur verið að leita leiða til að en...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Nýtingarsamningar

Frumvarp um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi verður lagt fyrir Alþingi í febrúar ef allt ge...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Opinn aðgangur er hagur almennings og fræðimanna

Flestir þeir sem þurft hafa að afla sér þekkingar á netinu rekast fljótlega á veggi þar se...  

Meira
Aðsendar greinar 20. feb. 2012 08:00

Sýndarsamráð

Mikil óánægja er ríkjandi í mörgum hverfum Reykjavíkur vegna vinnubragða meirihluta Samfyl...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Straumhvörf í stéttabaráttu

Nú hafa Hagsmunasamtök heimilanna (HH) talað fyrir réttlætiskröfum um almennar leiðrétting...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Sanngjörn skipting: 82% - 18%?

Á síðustu 20 árum hefur fjöldi ferðamanna til Íslands fjórfaldast úr 150 þús. í 600 þús. &...  

Meira
Aðsendar greinar 18. feb. 2012 06:00

Lækkun húsnæðisskulda

Umræðan um almenna lækkun húsnæðisskulda landsmanna heldur áfram. Stjórnvöld þykjast hafa ...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 12:01

Vinnufélagar dómara

Hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, og Viðar Már Matthíasson...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Réttur lánþega tryggður

Eitt helsta viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis allt frá hruni hefur verið að leita lei...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Stattu upp!

Með nýju ári óx þjónustusvæði Strætó til muna með samningum fyrirtækisins við Samtök sveit...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Verðtrygging er ekki lögmál

Þegar verðtryggingu var komið á var um neyðarráðstöfun að ræða sem tryggja átti sparifé, l...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Hverahlíð bíði betri tíma

Hugmyndir um sérstaka verkefnisfjármögnun á Hverahlíðarvirkjun eru nú ræddar í stjórn Orku...  

Meira
Aðsendar greinar 17. feb. 2012 06:00

Orkan er takmörkuð auðlind

Orka frá vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum er takmörkuð auðlind. Við byrjuðum stórvirkjanir...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 16:00

Felulitir

Frægt er um allt land að sveitarkassinn okkar Álftnesinga tæmdist. Þar að auki náði skulda...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 16:00

Sæll aftur Sighvatur Björgvinsson

Mikið bar á Sighvati Björgvinsyni í Silfri Egils á sunnudag. Hann tilheyrir þeim hópi fólk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 06:00

"Hækkun í hafi“?

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna lofaði fyrir þremur árum, í stjórnarsáttmála, a...  

Meira
Aðsendar greinar 16. feb. 2012 06:00

Hagsmunir barna eftir skilnað

Börn fráskilinna foreldra á Íslandi hafa yfirleitt fasta búsetu hjá móður sinni en heimsæk...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Sniðugar nauðganir