Snerting úr annarri vídd

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 10. febrúar 2012 06:00
Við tilheyrum sama myrkrinu
Við tilheyrum sama myrkrinu
Friðrika Benónýsdóttir skrifar:
Bækur. Við tilheyrum sama myrkrinu. Kristín Ómarsdóttir. Stella.

Kristín Ómarsdóttir er einstök í röðum íslenskra rithöfunda. Hugarheimur hennar er ferskur og skemmtilega öðruvísi og hún kemur á óvart með hverri nýrri bók. Við tilheyrum sama myrkrinu samanstendur af sex smásögum um vináttu þokkadísanna Marilyn Monroe og Gretu Garbo auk eins ljóðs um amerísku móðurina sem lagt er í munn, eða öllu heldur penna, Marilyn.

Inn í sögurnar af samskiptum þeirra vinkvennanna er fléttað sögum sem þær segja hvor annarri og úr verður heillandi heimur hugarflugs og sterkra mynda. Kristín málar nefnilega myndverk með orðunum. Litir, birta og hreyfing skipa stóran sess í textanum og sögurnar minna á köflum á slædsmyndasýningu.

Sögurnar sex eru reyndar töluvert misjafnar að gæðum og sú síðasta til muna slökust, sem er synd þar sem fyrstu sögurnar tvær og ljóðið langa hafa byggt upp í huga lesandans væntingar til glæsilegs lokahnykks.

Varla þarf að taka það fram að lýsingarnar á samskiptum þeirra stallsystra eru skáldskapur frá upphafi til enda. Engu að síður spretta þær ljóslifandi upp af síðunum; þunglynda, lesbíska ísdrottningin og kynlífskettlingurinn bókhneigði og gjafmildi. Þær eiga fegurðina og aðdáun heimsins sameiginlega en fátt annað. Vinátta þeirra er bandalag kvenna sem standa utan við hinn raunverulega heim þar sem ímyndin er allt og enginn kærir sig um að kynnast þeim í raun og veru. Þær eru dæmdar til eilífrar veru í Valhöll heimsfrægðarinnar og sú vera getur verið ansi köld og einmanaleg.

Stíll Kristínar er jafn sérstakur og hugmyndirnar. Langir flæðandi kaflar eru brotnir upp með stakkató myndbrotum í knöppum stíl og með allt öðru innihaldi og áhrifin verða eins og að vera vakin með löðrungi.

Bókina prýðir fjöldi teikninga eftir höfundinn sjálfan sem sýna þær Monroe og Garbo í þeim hlutverkum sem heimurinn hefur skikkað þær í og stangast skemmtilega á við þá mynd af þeim sem birtist í textanum.

Niðurstaða: Myndrænar og óvenjulegar sögur af vináttu sem aldrei átti sér stað, fullar af hugmyndaauðgi og óvæntum hlykkjum.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Snerting úr annarri vídd