Íslenski boltinn

Snéri aftur í boltann í sumar og gerir nú tveggja ára samning við Val

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dóra María Lárusdóttir er ein af bestu knattspyrnukonum landsins.
Dóra María Lárusdóttir er ein af bestu knattspyrnukonum landsins. Vísir/Hanna
Valsmenn voru stórtækir í gær þegar þeir gengu frá samningum við fjóra lykilmenn í kvennaliði félagsins eða þær Dóru Maríu Lárusdóttur, Mist Edvardsdóttur, Elínu Mettu Jensen og Laufeyju Björnsdóttur.

Dóra María, Mist, Elín Metta og Laufey skrifuðu allar undir nýjan tveggja ára samning við Hlíðarendaliðið en þær voru allar í stórum hlutverkum í liðinu í sumar. Valsmenn segja frá þessu á heimasíðu sinni.

Dóra María snéri aftur eftir eins árs fjarveru frá fótboltanum og vann sér ekki aðeins sæti í Valsliðinu heldur einnig í íslenska landsliðinu. Hún bætti við landsleikjum í ár og er nú búin að spila 113 landsleiki fyrir Ísland.

Dóra María var með 6 mörk og 7 stoðsendingar í 18 leikjum með Valsliðinu í Pepsi-deildinni 2016 en hún hefur skorað alls 89 mörk í 207 leikjum í efstu deild og alla fyrir Val.

„Dóra er einfaldlega Valsari út í eitt og er jafnframt gríðarlega góð knattspyrnukona. Hennar reynsla mun vega þungt á komandi tímabilum,“ segir í frétt um nýjan samning Dóru Maríu á Valsíðunni.

Elín Metta Jensen er einnig uppalin Valsari en hún var með 3 mörk og 3 stoðsendingar í 10 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar og hefur alls skorað 57 mörk í 83 leikjum fyrir Val í efstu deild. Hún hefur einnig verið í kringum A-landsliðið síðustu ár.

Mist Edvardsdóttir og Laufey Björnsdóttir hafa báðar komið til Vals á síðustu árum. Mist kom frá KR árið 2011 en er uppalin hjá Aftureldingu. Laufey kom frá Fylki 2012 en hún er byrjaði sinn fótboltaferil með KA á Akureyri.

Mist og Laufey voru báðar fastamenn í liði Vals í sumar. Mist Edvardsdóttir er 26 ára og hefur spilað 109 leiki fyrir Val og skorað í þeim 11 mörk. Mist á jafnframt 13 A-landsleiki að baki og 1 mark í þeim.  „Valsarar þekkja sögu Mistar, hún er baráttujaxl, mikill Valsari og er afskaplega traustur leikmaður,“ segir í frétt Valsmanna.

Laufey Björnsdóttir er 27 ára miðjumaður sem sannaði mikilvægi sitt með Valsliðinu á síðustu leiktíð þegar hún var lykilmaður á miðju liðsins. Laufey á 77 leiki að baki fyrir Val og í þeim hefur hún skorað 5 mörk. Laufey hefur spilað með U-15 og 17 landsliðum Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×