Innlent

Snekkja hennar hátignar í Reykjavík

Heimir Már Pétursson skrifar
Snekkja Margrétar Þórhildar Danadrottningar kom til hafnar í Reykjavík í gærmorgun. Skipið var smíðað fyrir 84 árum og er enn mikið notað af konungsfjölskyldunni.

Lystisnekkjan Dannebrog er í miklu uppáhaldi hjá dönsku konungsfjölskyldunni. Skipið er nýkomið úr hálfs mánaðar ferð um vesturströnd Grænlands með Margréti Þórhildi og Hinriki prins og leggur af stað til Kaupmannahafnar í kvöld.

Drottningin og prinsinn voru í hálfan mánuð á Grænlandi en þau hjónin gista yfirleitt um borð í snekkjunni í heimsóknum sínum. Að lokinni Grænlandsheimsókninni flaug drottningin heim til Kaupmannahafnar en Dannbrog kom hér við á leiðinni heim.

Formlegheit

Fréttastofan freistaði þess fá að kíkja um borð í dag en það gekk ekki með svo skömmum fyrirvara þar sem leyfi hefði þurft til þess frá yfirmönnum í Kaupmannahöfn. Formlegheitum er haldið þótt drottningin sé ekki um borð og vaktaskipti höfð á verði við landganginn með kúnstarinnar reglum.

Fyrsti stýrimaður sagði Margréti Þórhildi halda mikið upp á skipið sem afi hennar Kristján tíundi lét smíða árið 1931 og hleypt var af stokkunum ári síðar.

65 mannsíáhöfn snekkjunnar

Stýrimaðurinn á Dannebrog sagði okkur að snekkjan væri gott sjóskip. En þegar hennar hátign ferðaðist um úthöfin eins og til dæmis til Grænlands fengi hún fylgd frá herskipi. Það dugar ekkert minna. Og í þetta skipti er það herskipið Thesis sem var með í för.

Sextíu og fimm manns eru í áhöfn snekkjunnar sem konungsfjölskyldan notar aðeins á sumrin. En á ferðum sínum til bæja og borga í Danmörku, Færeyjum og Grænlandi eða til annarra landa, getur drottningin boðið allt að hundrað gestum um borð til sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×