Golf

Snedeker stóð uppi sem sigurvegari í rokinu á Torrey Pines

Snedeker hafi enn meiri ástæðu til að brosa en í gær en venjulega.
Snedeker hafi enn meiri ástæðu til að brosa en í gær en venjulega. Getty
Bandaríkjamaðurinn brosmildi, Brandt Snedeker, sigraði á Farmers Insurance mótinu sem kláraðist í gær, einum degi á eftir áætlun.

Snedeker lék hringina fjóra á Torrey Pines á sex höggum undir pari, einu betur en Suður-Kóreumaðurinn K.J. Choi sem rétt missti 10 metra pútt á lokaholunni til að jafna við Snedeker.

Lykillinn að sigrinum var klárlega lokahringurinn hjá Snedeker sem fór fram í ógeðslegu roki og rigningu, en hann var einn af þeim kylfingum sem kláraði leik á sunnudaginn og sá eini sem tókst að leika lokahringinn undir pari.

Það gátu þó ekki allir klárað á sunnudaginn og því þurfti Snedeker að fylgjast með í gær,, mánudag, en skor hans hélt og áttundi sigur hans á PGA-mótaröðinni var því staðreynd.

Snedeker lyfti því bikarnum án þess að þurfa að slá högg á lokadeginum, en meðalskorið á lokahringnum var 78 högg, sem er það hæsta á PGA-mótaröðinni í mörg ár.

Í vikunni hefjast svo tvö sterk mót, Waste Management meistaramótið á PGA-mótaröðinni og Omega Desert Classic á Evrópumótaröðinni, en þar er Rory McIlroy meðal þátttakenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×