Viðskipti erlent

Snapchat safnar miklum upplýsingum um notendur

Samúel Karl Ólason skrifar
Evan Spiegel er framkvæmdastjóri Snapchat.
Evan Spiegel er framkvæmdastjóri Snapchat. Vísir/AFP
Notkunarskilmálar skilaboðaforritsins Snapchat, bæði hvað varðar notkun og persónuupplýsingar, voru uppfærðir þann 17. nóvember síðastliðinn, en einnig voru þeir einfaldaðir svo almenningur skilur þá loks. Nú er auðvelt að sjá hvaða upplýsingum fyrirtækið safnar um notendur sína og hvernig forritið fylgist með notendum.

Án breytinga mun forritið og þar af leiðandi fyrirtækið safna miklum upplýsingum um fólk. Þar með talið staðsetningu, vinalista og nafn, þrátt fyrir að nafn komi hvergi fram við skráningu á Snapchat. Samkvæmt Buisness Insider safnar fyrirtækið þessum upplýsingum, vegna þess hve gagnlegar þær eru fyrir auglýsendur.

Vert er að taka fram að notendur geta komið í veg fyrir hluta upplýsingaöflunar fyrirtækisins í stillingum forritsins. Einnig er mögulegt að eyða því, en þrátt fyrir það geymir fyrirtækið upplýsingarnar áfram í einhvern tíma.

Safna upplýsingum úr símaskrá og myndum

Meðal þeirra upplýsinga sem ræðir er símaskrá þín. Snapchat nær öllum nöfnum í símanum þínum og þar af leiðandi nafni þínu í símum þeirra sem þú átt í samskiptum við. Hægt er að stöðva þetta í stillingum.

Þá hefur fyrirtækið aðgang að myndum í símanum þínum. „Þar sem Snapchat gengur út á samskipti við vini, munum við – með þínu samþykki, safna upplýsingum úr símaskrá notenda og myndum,“ stendur í persónuöryggisstefnu Snapchat.

Þá fylgist Snapchat með staðsetningu notenda sinna, en mögulegt er að slökkva á því.

Fylgjast með netnotkun

Einnig safnar forritið upplýsingum um netnotkun notenda í gegnum svokallaðar „Cookies“. Netpóstfang, hvert þú sendir myndir með forritinu, hvenær og frá hverjum þú opnar skilaboð. Að lokum veit Snaphcat hvernig síma neytendur nota og númerið sem einkennir þá.

Fyrirtækið tók nýlega SnapCash í notkun í Bandaríkjunum sem gerir fólki kleift að senda vinum sínum peninga í gegnum forritið. Með því fær fyrirtækið upplýsingar um debet- og kreditkortanúmer. Þar að auki mun fyrirtækið öðlast fullt nafn notenda og heimilisfang í gegnum kortaupplýsingar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×