Viðskipti erlent

Snapchat gerir notendum kleift að senda peninga

Samúel Karl Ólason skrifar
Enn sem komið er Snapcash eingöngu fáanlegt í Bandaríkjunum.
Enn sem komið er Snapcash eingöngu fáanlegt í Bandaríkjunum.
Forsvarsmenn Snapchat tilkynntu í dag að fyrirtækið muni nú gera notendum kleift að senda peninga í gegnum Snapchat og gengur fyrirkomulagið undir nafninu Snapcash. Neytendur munu geta tengt debet kort sín við forritið og sent peninga á þægilegan hátt.

Snapcash er unnið í samstarfi við Square, sem sérhæfir sig í netgreiðslum.

Á vef Forbes segir að fyrirtækin eigi eftir að svara spurningum varðandi öryggi upplýsinga. Hökkurum tókst nýverið að koma höndum yfir fjölda mynda úr Snapchat og notendur eru enn mjög varir um sig og persónuupplýsingar sínar.

Enn sem komið er Snapcash eingöngu fáanlegt í Bandaríkjunum fyrir einstaklinga sem eru eldri en 18 ára. Í tilkynningunni er ekkert sagt til um framtíðarþróun forritsins, né hvar það verður fáanlegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×