Lífið

Smurði sæðinu um allt og fékk koss á kinn frá mömmu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Óðinn Waage.
Jón Óðinn Waage.
Júdóþjálfarinn Jón Óðinn Waage á Akureyri vildi óska þess að fólk af hans kynslóð hefði fengið kynfræðslu á borð við þá sem kynfræðingurinn Sigga Dögg býður upp á. Jón Óðinn mætti á fyrirlestur hjá Siggu Dögg á dögunum og er fullviss um að hún sé að vinna frábært starf.

Jón Óðinn ritar stórskemmtilegan pistil í Akureyri vikublað þar sem hann lýsir því hvernig honum hafi orðið við þegar fjórtán ára sonur hans og fjórtán ára fósturdóttir komu heim úr skólanum. Sonurinn sagðist aldrei ætla að stunda kynlíf en dóttirinn hafði fengið smokk og þau skilaboð að smokkinn skildi hún prófa.

„Mér fannst ég vera að missa tökin á uppeldinu, hvað var eiginlega í gangi í þessu skólakerfi? Svarið var að bæði höfðu verið á fyrirlestri hjá Siggu Dögg kynfræðingi. Þegar við foreldrar fengum síðan boð um að mæta líka á fyrirlestur hjá Siggu Dögg þá mætti ég fyrstur manna,“ segir Jón Óðinn. Var hann ánægður með fyrirlesturinn eins og áður var komið inn á.

Rifjar júdóþjálfarinn upp þegar hann var í barnaskóla og vinur hans stríddi nokkrum stelpum með því að kalla þær túrista. Hann hefði haldið að það væri vegna þess að þær hefðu verið í ferðalagi. Hann hafi ekkert skilið hvers vegna þær tóku þessari stríðni illa.

„Þegar að ég losaði sæði í fyrsta skipti þá fékk ég áfall, hélt ég hefði pissað á mig,“ segir Jón Óðinn. Við fermingaraldur hafi hann komist yfir bókina Sjafnaryndi sem var kennslubók í kynlífi. Þar hafi hann meðal annars lesið þann fróðleik að sæði væri gott fyrir húðina.

„Ég tók þetta bókstaflega. Nuddaði því fyrst á magann, en það var merkilegt hvað varð mikið úr þessu litla magni. Að maganum loknum var bringan smurð. Afgangurinn fór á andlitið,“ segir Jón Óðinn. Alla tíð síðan hafi hann haft mjög sterka húð og varla hrukku að sjá.

„Það var samt alltaf dálítið sérstakt þegar mamma kom heim og kyssti mig á kinnina,“ eru lokaorð pistilsins sem vakið hefur mikla athygli og fengið margan til að skella upp úr ef marka má ummælakerfi Akureyri vikublaðs.


Tengdar fréttir

"Það bjargaði lífi sonar míns hvað flugvöllurinn var nálægt"

Aðgengi að bestu læknisþjónustunni verður að vera gott fyrir alla landsmenn. Þetta segir faðir drengs sem ekki væri á lífi ef lengra væri á milli Reykjavíkurflugvallar og Landspítalans. Hann segir hugmyndir um flutning flugvallarins vanhugsaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×