Körfubolti

Smith spenntur fyrir Houston Rockets

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Smith var látinn fara frá Detroit á dögunum.
Smith var látinn fara frá Detroit á dögunum. vísir/afp
Josh Smith segist spenntur að ganga til liðs við Houston Rockets, en þessi 29 ára gamli framherji var látinn fara frá Detroit Pistons á dögunum.

„Þetta eru spennandi tímar fyrir mig,“ sagði Smith í samtali við FOX26 Sports, en hjá Houston hittir hann fyrir vin sinn og félaga Dwight Howard.

„Það verður frábært að spila með góðum vini og einum besta liðsfélaga sem ég hef leikið með. Við getum náð langt,“ sagði Smith sem er einnig spenntur fyrir að spila með James Harden.

„Þú getur ekki beðið um meira en að spila með besta skotbakverðinum í bransanum, James Harden.“

Smith hefur gert munnlegt samkomulag við Houston en ljóst er að hann mun styrkja liðið í hinni hörðu baráttu í Vesturdeildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×