Bílar

Smart kynnir risabíl

Finnur Thorlacius skrifar
Sá "stóri" í smíðum.
Sá "stóri" í smíðum.
Þeim hjá smábílaframleiðandanum Smart fannst vera kominn tími á að taka þátt í auglýsingastríðinu með stóru bílunum og hvað var þá annað í myndinni en að smíða risastóran Smart. Þeir vilja jú verða risastórir á markaðnum og því þarf að svara.

Þessi auglýsing sem þeir gerðu með ofvaxinn Smart smábíl er skemmtilegt dæmi um öfuga markaðssetningu sem vekur enn meiri áherslu á sérstöðu Smart bílanna, þ.e. hversu smáir og sniðugir þeir eru.


Smart fer öfgafulla leið sem kemur líklega jafn undarlega fyrir sjónir og þeim 'tilraunadýrum“ sem eru að meta framtak Smart í myndbandinu hér fyrir neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×