Jól

Smáréttir sem gleðja bragðlaukana

Elín Albertsdóttir skrifar
Guðrún Hrund segist njóta aðventunnar með kertaljósum og kósíheitum.
Guðrún Hrund segist njóta aðventunnar með kertaljósum og kósíheitum. MYND/ANTON BRINK
Guðrún Hrund Sigurðardóttir starfaði lengi sem ritstjóri Gestgjafans. Matargerð er mikið áhugamál og hún segist finna kyrrð og ró í eldhúsinu, nokkurs konar slökun og hugleiðslu. Hér eru flottir og girnilegir smáréttir úr eldhúsi Guðrúnar.

Þótt Guðrún sé mikið jólabarn segist hún hafa minnkað bakstur á undanförnum árum. „Ég geri frekar konfekt og sörur. Mér finnst líka gaman að gera chutney, búa til jólalíkjör og kveikja á mörgum kertum. Ég vil frekar hafa færri skreytingar en fleiri. Mér finnst aðventan æðisleg og vil njóta hennar.“

Guðrún gefur hér uppskriftir að einföldum en góðum smárétti og fallegum og ljúffengum eftirrétti. „Ég hef mjög gaman af smáréttum, litlum bitum, sem hægt er að bera fram með fordrykk. Þessi réttur getur verið þannig eða sem forréttur. Ég gerði alltaf fínlega kjúklingalifrarkæfu en þetta er meira grófsaxað og svo setja pekanhneturnar punktinn yfir i-ið. Þetta er mjög góður og jólalegur réttur,“ segir hún. Guðrún leggur brauðið fallega á trébretti sem hún er sjálf að selja hjá versluninni Meiði. 

Guðrún gefur síðan uppskrift að skemmtilegum eftirrétti sem er lítil marengskaka. „Þetta eru kökur sem eru fallegar á diskinum. Ein kaka á mann og stundum set ég nokkra dropa af balsamediki yfir. Lemon curd er ótrúlega frísklegt og dregur úr sætunni í marengsinum,“ útskýrir hún. „Það er auðvelt að kaupa lemon curd tilbúið í stórverslunum en einnig er skemmtilegt að gera það sjálfur.“

Guðrún segist vera fastheldin þegar kemur að jólamatnum. „Ég er alltaf með rjúpu og önd. Síðan hefur maður góðar sósur með og meðlæti,“ segir hún. 

Æðislegur smáréttur. Kjúklingalifur á ristuðu brauði með chili- og rósmarínkrydduðum pekanhnetum.MYND/ANTON BRINK
Kjúklingalifur á ristuðu brauði 

með chili- og rósmarínkrydduðum pekanhnetum

Þetta er einfaldur réttur úr kjúklingalifur sem er bæði hægt að bera fram sem forrétt eða smárétt með fordrykknum.

2 msk. smjör

200 g kjúklingalifur, söxuð í fremur smáa bita

3 msk. söxuð steinselja

1 askja sveppir, saxaðir fremur smátt

1 msk. hveiti

1-2 dl kjúklingasoð

½ sítróna, safi

1 msk. Marsala (má sleppa)

3 msk. parmesanostur, rifinn

salt

pipar

ristaðar brauðsneiðar, skorpulausar og hver sneið skorin í 4 bita.

Hitið smjörið á pönnu og steikið lifrina í nokkrar mín. eða þar til hún hefur brúnast á öllum hliðum. Bætið þá steinselju og sveppum út í og steikið áfram. Sáldrið hveiti yfir og blandið vel saman. Bætið því næst kjúklingasoði saman við, saltið og piprið eftir smekk og látið malla í u.þ.b. 10 mín. Takið þá af hitanum og bætið parmesanosti, sítrónusafa og Marsalavíni út í. Blandið vel saman. Skiptið á milli ristuðu brauðsneiðanna og dreifið söxuðu pekanhnetunum yfir.

(Ef þið viljið hafa blönduna fínni, meira eins og kæfu, þá er hægt að setja hana í matvinnsluvél eða mauka með töfrasprota).

Glæsilegur eftirréttur. Marengskaka með lemon curd.
Pekanhnetur með rósmarín og chili

100 g pekanhnetur

1-2 msk. olía

1 msk. ferskt rósmarín, saxað

chili-flögur, eftir smekk

Maldonsalt

Hitið ofninn í 180°C. Blandið saman í skál hnetum og olíu. Bætið þá kryddi saman við og blandið vel saman. Klæðið ofnskúffu með bökunarpappír og dreifið hnetunum þar á. Bakið í u.þ.b. 10-15 mín. eða þar til hneturnar eru farnar að ristast og dökkna örlítið. Takið þá úr ofninum og kælið.

Sítrónumarengs með lemon curd,mascarpone og hindberjum

3 eggjahvítur

100-150 g sykur

½ tsk. balsamedik

rifinn börkur af 1 sítrónu

Hitið ofninn í 120°C. Setjið eggjahvítur og sykur í skál og stífþeytið. Bætið balsamediki og sítrónu­berki út í og blandið varlega saman. Setjið í sprautupoka og sprautið litla hringi (u.þ.b. 5 cm í þvermál) á bökunarplötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Bakið í 1½-2 klst.

Falleg aðventuskreyting. Bakkarnir og jólatrén eru frá Meiði og kertaskrautið frá Søstrene Grene.
Lemon curd

3 egg

100 g sykur

2 sítrónur, safi og rifinn börkur

50 g smjör

Þeytið saman egg, sykur og sítrónusafa yfir vatnsbaði. ­Hrærið í allan tímann þar til blandan hefur þykknað. Takið þá af hitanum og bætið smjörinu út í í bitum. Hrærið vel saman þar til smjörið hefur bráðnað alveg saman við. Bætið þá sítrónuberki út í. Hellið í hreinar krukkur og látið kólna. Geymist í allt að 2 vikur í kæli.

Ofan á:

1 dós mascarpone-ostur eða rjómaostur

1 dl flórsykur

Blandið vel saman í skál.

hindber eða jarðarber

minta

balsamedik, má sleppa

Setjið til skiptis lemon curd og ostablöndu ofan á hverja köku. Það fer allt eftir smekk hversu mikið þið viljið hafa af hverju. Skreytið með hindberjum og mintu og dreypið örlitlu balsamediki yfir ef vill.






×