Innlent

Smala í formannskjöri Neytendasamtakanna

Þorgeir Helgason skrifar
Teitur Atlason og Jóhannes Gunnarsson.
Teitur Atlason og Jóhannes Gunnarsson. vísir/aðsend/anton brink
Mikil ólga er innan Neytendasamtakanna vegna formannskjörs sem fer fram um næstu helgi. Um 300 manns hafa boðað komu sínu á aðalfund samtakanna en rúmur helmingur þeirra skráði sig í samtökin á síðustu stundu. Þetta staðfesta Neytendasamtökin en á aðalfundinn í fyrra mættu um það bil hundrað manns.

Samkvæmt reglum félagsins hafa allir skuldlausir félagar samtakanna kosningarétt. Síðasta fimmtudag var reglum kosninganna breytt með þeim hætti að ákveðið var að á aðalfundinum yrði posi. Það var gert til þess að þeir sem hygðust kjósa gætu greitt árgjaldið á fundinum sjálfum.

Pálmey Gísladóttir, frambjóðandi til formanns Neytendasamtakanna, segir í færslu á Facebook á mánudag að hún hafi fyrst fengið fregnir af þessum reglubreytingum á mánudag.

„Þetta hefur það að verkum að nú er möguleiki á því að einhver hafi skráð fjöldann allan af vinum sínum upp á þá von og óvon að viðkomandi mætti og kysi,“ segir Teitur Atlason, varaformaður samtakanna og einn af formannsframbjóðendunum.

Á aðalfundi samtakanna í fyrra var hlutverki uppstillingarnefndar breytt. Áður fyrr hafði hún séð um framkvæmd kosninganna og starfað með nýkjörnum formanni við myndun stjórnar. Breytingin á hlutverki hennar hefur í för með sér að uppstillingarnefnd skilar tillögu um formannsefni og stjórn á þingi samtakanna.

Niðurstaða uppstillingarnefndar var að Ólafur Arnarson, hagfræðingur og rithöfundur, væri hæfastur til þess að gegna stöðunni. Ákvörðun uppstillingarnefndar hefur verið gagnrýnd af félagsmönnum samtakanna, meðal annars vegna þess að hún þykir ekki hafa lagt mikinn metnað í hæfismatið.

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að stjórnin sem kosin verði á laugardag verði að leggjast í endurbætur á lögum samtakanna.

„Það liggur alveg fyrir að það eru ákveðnir agnúar á lögunum en það er alls ekki meiningin að vera með loðin lög. Það þarf til dæmis að liggja fyrir í lögunum eftir hvaða verkferlum uppstillingarnefnd starfar,“ segir Jóhannes.

Aðalfundur Neytendasamtakanna fer fram á laugardag í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, en þau fimm sem hafa boðað framboð eru: Árni Eðvaldsson húsasmíðameistari, Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræðingur, Ólafur Arnarson hagfræðingur, Pálmey Gísladóttir lyfjatæknir og Teitur Atlason, varaformaður samtakanna.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×