Viðskipti innlent

Smábátur með tólf tonn af stórum þorski eftir daginn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gríðarleg þorskveiði er nú við Snæfellsnes. Sjómaður, sem stundað hefur fiskveiðar í hálfa öld, segist aldrei hafa kynnst öðru eins. Fjallað var um aflahrotuna í fréttum Stöðvar 2 og sýndar myndir af Nesinu, sem sjá má í spilaranum hér að ofan. 

Það er líflegt í höfnunum á utanverðu Snæfellsnesi þessa dagana og aflatölurnar með ólíkindum. Rifsari, 26 metra bátur, kom með 37 tonn að landi í Rifshöfn eftir daginn í gær og heyrið hvað Rafn Guðlaugsson og sonur hans á Katrínu SH, fjórtán metra plastbát, komu með að landi í Ólafsvík: 

„Tólf-þrettán tonn í ellefu net upp úr sjó. Ég held að það hafi aldrei verið svo mikill fiskur, - í alvöru talað,“ segir Rafn. Þeir fóru reyndar tvo túra í gær til að sækja allan þennan fisk.

Ómar Marísson, háseti á Saxhamri, við löndun á Rifi.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Hásetarnir á stærri bátunum láta einnig vel af fiskeríinu, þeir á Saxhamri voru að landa 28 tonnum á Rifi eftir daginn. Ómar Marísson, háseti á Saxhamri, segir að þeir hafi ekki þurft að sækja langt, þeir hafi veitt þetta rétt fyrir utan, „þetta er svona tuttugu mínútna stím,“ segir hann. 

„Það er farið út klukkan sjö á morgnana. Við erum að koma heim svona þrjú-fjögur,“ segir Ómar.

Frá Rifshöfn í gær. Magnús SH frá Hellissandi kemur að bryggju.Stöð 2/Hákon Logi Sigurðarson.
Aflinn er nær eingöngu þorskur og það vænn. 

„Mjög stór og góður þorskur. Svo er síldin hér inn um allt. Svo kom blessuð loðnan, sem betur fer, því það skiptir okkur miklu máli, fyrir þorskinn, að fá loðnuna,“ segir Rafn Guðlaugsson. 

Línubátar veiða þó ekki eins vel og netabátar og dragnótabátar, sem bendir til að þorskurinn sé í miklu æti og hafi minni áhuga á beitunni.

Rætt við Rafn Guðlaugsson í Ólafsvíkurhöfn.Stöð 2/Sigurjón Ólason
„Núna erum við að fá kannski tíu tonn í net. Það þótti hérna í gamla daga gott að fá tonn í net.“ 

Og Rafn hefur reynsluna, búinn að sækja sjóinn í hálfa öld. 

-Hefurðu séð annað eins? 

„Ég held ekki. Ég held ég muni ekki eftir þessu. Þetta er með ólíkindum.“

Gunnar Bjarnason SH í Ólafsvíkurhöfn í gær.Stöð 2/Hákon Logi Sigurðarson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×