Glamour

Smáatriðin skipta máli hjá Chanel

Ritstjórn skrifar
Glamour/EPA
Það er alltaf ákveðinn hápunktur á tískuvikunum þegar sjálfur Karl Lagerfeld frumsýnir nýja línu fyrir Chanel. Að þessu sinni var hann með tækni og tölvur í aðalhlutverki þar sem hann breytti sjálfu Grand Palais í tölvudeild og lét Chanel „vélmenni“ opna sýningu. 

Hér eru nokkrir skemmtilegir hluti sem við tókum eftir á vor/sumarsýningu Chanel í París. Hina

Klassísku Chanel töskurnar hafa fengið skemmtilge ayfirhalningu og mátti sjá margar flottar útgáfur á tískupallinum. 

Derhúfur - margar fyrirsæturnar báru sérsaumaðar Chanel derhúfur. Smart!

Risastórir skartgripir þar sem lógóið er vel sýnilegt. 

Fylgihlutir í stíl við fötin. 

Risastórir eyrnalokkar. 

Flestar fyrirsæturnar voru í þægilegum skóbúnaði og minna af pinnahælum sem er hið besta mál fyrir næsta misseri. 

Karl Lagerfeld breytist ekkert á milli ára - takk fyrir okkur kæri Kalli. Þangað til næst!






×