Innlent

Slysum fækkar samhliða dýrara ökunámi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Guðbrandur hefur margra áratuga reynslu af ökukennslu.
Guðbrandur hefur margra áratuga reynslu af ökukennslu. Vísir/Pjetur
Kostnaður við ökunám hefur hækkað á síðastliðnum árum en samhliða því hefur slysum ungra ökumanna fækkað.

Samkvæmt tölum sem Fréttablaðið viðaði að sér frá Ökukennarafélagi Íslands var kostnaður við ökunám árið 2004 alls 124.700 krónur, sem framreiknað til vísitölu dagsins í dag eru 225.392 krónur. Námið kostar nú alls 286.700 krónur. Þetta er 27,2 prósenta hækkun.

Hækkunin skýrist að einhverju leyti af því að nýju skyldunámskeiði var bætt við árið 2009 en hann kallast Ökuskóli 3. Fyrir þurftu allir nemendur einungis að sitja tvö námskeið, Ökuskóla 1 og Ökuskóla 2. Ökuskóli 3 er fimm tíma námskeið þar sem eru þrír verklegir tímar og tveir bóklegir. Heildartímafjöldi námsins hefur því hækkað. Nemendur þurfa þar að auki að sækja verklega tíma ásamt ökukennara sem oftast eru tuttugu talsins.

Breytingar dragi úr slysatíðni

„Ég er sannfærður um það að þessar breytingar sem hafa orðið á ökunámi hafa dregið úr slysatíðni og aukið hæfi ökumanna,“ segir Guðbrandur Bogason, framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður Ökukennarafélags Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Hann hefur um fjörutíu ára reynslu af ökukennslu.

Árið 2000 var hlutdeild ungra ökumanna um 36 prósent í umferðarslysum en sú tala hefur nú lækkað um 8 prósent eða niður í 28 prósent allra slysa. „Þetta er ekki bara betri kennsla þó að það sé stórt atriði,“ segir Guðbrandur. „Það er margt sem spilar þarna inn í. Til að mynda ákveðin eftirfylgni eins og með punktakerfinu. Ég held líka að meiri virkni innan fjölskyldu unga fólksins hafi áhrif.“

Guðbrandur hefur verið talsmaður þess að bílprófsaldur verði hækkaður en hann er nú 17 ár. Ungt fólk fær æfingaleyfi ári fyrr.

Guðbrandur bendir á að bílar séu þau tæki í sögunni sem hafi valdið hvað flestum dauðsföllum. „Þú færð ekki byssuleyfi þetta gamall,“ segir hann. „Þú ert ekki einu sinni ábyrgur fyrir því tjóni sem þú veldur.“

Hann telur ólíklegt að aldurinn verði nokkurn tímann hækkaður meira en upp í 18 ára aldurinn. „Ég tel að til að það sé kominn sá þroski sem til þarf þá þurfi fólk að vera orðið tvítugt. En þetta er mín persónulega skoðun. Ég tek það fram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×