Innlent

Slydda og rigning einkennir daginn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hitastigið ætti þó að vera réttum megin við núllið í dag.
Hitastigið ætti þó að vera réttum megin við núllið í dag. Sigurjón Óla
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni rigna víða á landinu í dag og að það verði jafnvel slydda á láglendi en snjókoma til fjalla.

Þó verði úrkomulítið norðaustantil fram eftir degi. Suðaustan og síðar austan 10 til 18 m/s mun smám saman snúast í sunnan og suðvestan 8 til 13 m/s eftir því sem líður á daginn. Því munu fylgja skúrir eða él suðvestantil.

Á norðan- og austanverðu landinu mun ganga í austan og norðaustan 8 til 15 m/s með éljum í kvöld og nótt en heldur hægari og léttir til sunnan jökla á morgun.

Hitin í dag verður um og yfir frostmarki en Veðurstofan býst þó við því að það verði vægt frost Norðaustanlands fram eftir degi. Það muni svo kólna aftur í nótt og á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Snýst í norðaustan 8-13 m/s. Slydda suðaustan og austanlands en snjókoma til fjalla. Léttir smám saman til á Suður og -Vesturlandi. Hiti um og yfir frostmarki við ströndina en vægt frost inn til landsins.

Á fimmtudag:

Norðan 5-13 og dálítil él með norður og austurströndinni en léttskýjað sunnan heiða. Kólnar í veðri og frost víða 1 til 7 stig.

Á föstudag:

Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en él við norðurströndina. Harðnandi frost, allt að 15 stig inn til landsins um kvöldið.

Á laugardag:

Suðaustanátt með heldur hlýnandi veðri og rigningu eða slyddu við suðvesturströndina en snjókomu til fjalla. Bjartviðri víðast hvar norðan og austantil og áfram frost. Snýst í suðvestlæga átt með éljum SV-til um kvöldið og þyknar upp með slyddu eða snjókomu austantil. Hiti kringum frostmark.

Á sunnudag:

Líkur á suðvestanátt með éljum um landið vestanvert, en léttir til austanlands. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar SV-til um kvöldið.

Á mánudag:

Útlit fyrir hvassa og hlýja suðaustanátt með rigningu víða um land en suðvestan hvassviðri með skúrum vestantil síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×