Innlent

Sluppu ómeiddir þegar bíll valt

Gissur Sigurðsson skrifar
Ekki liggur fyrir hvers vegna ökumaðurinn missti stjórn á bílnum.
Ekki liggur fyrir hvers vegna ökumaðurinn missti stjórn á bílnum. vísir/pjetur
Tveir menn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af þjóðveginum í Víkurskarði í gærkvöldi.

Ekki liggur fyrir hvers vegna ökumaðurinn missti stjórn á bílnum, en það gerðist þegar hann var að taka fram úr stórum flutningabíl.

Það varð mönnunum til happs að bíllinn valt út af upp í hlíðina en ekki fram af veginum niður snar bratta hlíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×