Innlent

Sluppu með skrekkinn við Arnarnesbrú eftir ölvunarakstur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá vettvangi við Hafnarfjarðarveg.
Frá vettvangi við Hafnarfjarðarveg. Vísir/Ívar
Tveir strákar um tvítugt sluppu án alvarlegra meiðsla þegar fólksbíl þeirra fór út af Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú á ellefta tímanum í kvöld. Ljóst er að ökumaður bílsins var ölvaður.

Bílnum var ekið í átt að Hafnarfirði en svo virðist sem að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar.

Sjúkrabíll var kallaður á vettvang en fulltrúi Vísis á svæðinu segir að ökumaður og farþegi bílsins hafi báðir sloppið með skrekkinn og hvorugur hlotið teljandi meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×