Innlent

Sluppu án meiðsla eftir bílveltu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Bílveltan varð skammt frá Fosshótel Vatnajökli við Lindarbakka en hótelið er rauðmerkt á kortinu.
Bílveltan varð skammt frá Fosshótel Vatnajökli við Lindarbakka en hótelið er rauðmerkt á kortinu. mynd/ja.is
Tveir erlendir ferðamenn sluppu án meiðsla þegar bíll þeirra valt skammt vestan við Fosshótel Vatnajökul við Lindarbakka á Höfn í Hornafirði á þriðja tímanum í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Höfn er töluverð hálka og eru vegfarendur því beðnir um að fara með gát.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×