Fótbolti

Slóvenía marði Slóvakíu | Öruggt hjá Norður-Írlandi | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Norður-Írar fagna einu marka sinna
Norður-Írar fagna einu marka sinna vísir/getty
Norður-Írland átti ekki í nokkrum vandræðum með San Marino í C-riðli undankeppni HM í kvöld. Norður-Írland vann 4-0.

Steven Davis kom Norður-Írum á bragðið af vítapunktinum á 26. mínútu og þannig var staðan allt þar til ellefu mínútur voru til leiksloka. Þá skoraði Kyle Lafferty.

Fimm mínútum fyrir leiklok skoraði Jamie Ward áður en Lafferty skoraði annað mark sitt á síðustu mínútu leiksins.

Norður-Írland er með 4 stig eftir tvo leiki en San Marino er án stiga.

Tveir leikir voru í F-riðli í kvöld. Slóvenía lagði Slóvakíu á heimavelli 1-0 með marki Rok Kronaveter á 74. mínutu og Skotland og Litháen gerðu 1-1 jafntefli í Skotlandi.

Fedor Cernych kom Litháum yfir á 59. mínútu en James McArthur bjargaði andliti Skota einni mínútu fyrir leikslok.

England er því eitt með fullt hús stiga í efsta sæti riðilsins en Skotalnd og Slóvenía koma þar á eftir með 4 stig. Litháen er með 2 stig og Slóvakía án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×