Innlent

Slösuðust í bílveltu skammt frá Höfn

Gissur Sigurðsson skrifar
Upplýsingar um líðan fólksins eða tildrög slyssins liggja ekki fyrir.
Upplýsingar um líðan fólksins eða tildrög slyssins liggja ekki fyrir. Vísir/Pjetur
Þrennt slasaðist í bílveltu skammt frá Höfn í Hornafirði í gærkvöldi.

Talið var nauðsynlegt að fólkið kæmist undir læknishendur á Landsspítalanum og var meðal annars haft samband við Landhelgisgæslunnar, sem undirbjó að senda þyrlu austur.

Í ljós kom að nærtækara var að senda fólkið með sjúkraflugvél, sem kom með fólkið til Reykjavíkur um klukkan hálf tvö í nótt, og var það flutt á slysadeild.

Upplýsingar um líðan fólksins eða tildrög slyssins liggja ekki fyrir.

Erlendir ferðamenn á bílaleigubíl sluppu hins vegar ómeiddir þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum, sem hafnaði langt utan vegar í grennd við Kerið í Grímsnesi í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×