Innlent

Slóst við lögreglumenn

Dópaður karlmaður lenti í ryskingum við lögreglumenn og hafði í hótunum við þá uns hann var yfirbugaður og settur í járn. Þetta gerðist í heimahúsi í austurborginni laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi, eftir að húsráðendur kölluðu eftir aðstoð, þar sem maðurinn var með óspektir og neitaði að fara.

Engan sakaði í átökunum en maðurinn er vistaður í fangageymslu og bíður yfirheyrslu í dag. Hann á meðal annars yfir höfði sér sekt fyrir að hafa haft í hótunum við lögrelgumenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×