Lífið

Slökunartónlist fyrir börn

Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar
Regína Ósk segir slökunartónlist hafa góð áhrif á börn.
Regína Ósk segir slökunartónlist hafa góð áhrif á börn. MYND/STEFÁN
Regína Ósk segir fátt hafa eins róandi áhrif á börn og slakandi tónlist. Hún gaf út geisladiskinn Leiddu mína litlu hendi í samstarfi við Friðrik Karlsson gítarleikara, sem spilaði á sínum tíma með Mezzoforte, fyrir nokkru. „Þetta er algjörlega tímalaus tónlist sem á alltaf við. Hér er um að ræða barnasálmana í slökunarútgáfu eftir Friðrik. Þegar ég var ófrísk að syni mínum söng ég á jólatónleikum hjá Fíladelfíu og Friðrik var að spila. Þá fékk ég þessa hugmynd. Ég hafði heyrt vögguvísur af disk eftir hann sem heitir Móðir og barn og langaði að syngja barnasálmana í þessum dúr,“ útskýrir Regína Ósk.

„Þetta er tónlist sem hægt er að spila fyrir nýfæddu börnin og óléttar konur en hann er líka ljúfur fyrir eldri börn. Dætur mínar voru fimm og tólf ára þegar diskurinn kom út og tónlistin virkað ekki síður á þær en litla bróður þeirra. Ég segi oft að þetta sé fyrsti diskurinn sem ég geri þar sem ég er ánægð með að börnin sofni á fimmta lagi. Þá veit ég að hann virkar eins og hann á að gera.“

Diskurinn hefur fengið góðar viðtökur og Regína Ósk er eftirsótt á foreldramorgnum hjá kirkjunni þar sem hún syngur sálmana fyrir foreldra og börn. „Fyrsti foreldramorgunninn sem ég mætti á var hjá Lindakirkju. Þetta er stór sókn, þar voru samankomnar fimmtán mæður og fullt af börnum í fremur litlu rými. Ég var frekar stressuð yfir því hvernig mér myndi ganga en um leið og ég byrjaði að syngja fyrsta lagið datt allt í dúnalogn og það lagðist ró yfir allan mannskapinn,“ rifjar Regína Ósk upp. Hún segir þessar heimsóknir gefa sér heilmikið en gleðilegast sé að sjá hvernig börnin slaki á þegar þau heyra sálmana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×