Innlent

Slökkviliðið kallað að Snælandsvideo

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliðið var kallað út tvisvar í kvöld.
Slökkviliðið var kallað út tvisvar í kvöld.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að söluturninum Snælandsvideo í Kópavogi nú undir kvöld. Eldur logaði á snyrtingu söluturnsins. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í ruslafötu inni á snyrtingunni. Tveir slökkvibílar voru sendir á staðinn en eldurinn reyndist minni en talið var í upphafi. Slökkvistarf gekk vel.

Þá var slökkviðið kallað að Norðurhellu í Hafnarfirði vegna sinubruna. Um lítilsháttar eld var að ræða og gekk greiðlega að stöðva eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×