Innlent

Slökkviliðið kallað á Nonnabita

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Nonnabita í miðborg Reykjavíkur.
Frá Nonnabita í miðborg Reykjavíkur. Mynd/Nonnabiti
Nýr starfsmaður á vakt á skyndibitastaðnum Nonnabita í Hafnarstræti komst í hann krappann í morgun. Pannann á staðnum ofhitnaði svo kviknaði lítill eldur.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn en þá hafði hins vegar verið hringt í neyðarlínuna sem sendi slökkvibíl og sjúkrabíl á staðinn. Þeirra viðvera í Hafnarstrætinu var hins vegar stutt áður en haldið var aftur í Skógarhlíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×