Innlent

Slökkvilið í útkalli í Skerjafirði

Bjarki Ármannsson skrifar
Myndin tengist ekki þessu útkalli.
Myndin tengist ekki þessu útkalli. Vísir/Eyþór
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir nú útkalli vegna tilkynningar um að mikill reykur berist úr einbýlishúsi við Skildinganes í Skerjafirði.

Að sögn Slökkviliðsins í Skógarhlíð er talið að reykurinn gæti stafað frá reykháfi eða arni. Ekki er talið að fólk sé í hættu inni í húsinu en verið er að ganga úr skugga um það þessa stundina.

Uppfært: Slökkvilið staðfesti um hálfníuleytið að reykur kom frá stífluðum reykháf. Reykurinn olli engu tjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×