Innlent

Slökktu eld í íbúðarhúsi í Hafnarfirði

Birgir Olgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti eld í íbúðarhúsi við Öldugötu í Hafnarfirði dag. Tilkynning um eld barst slökkviliðinu á fjórða tímanum en um tveimur mínútum síðar barst tilkynning um eld í iðnaðarhúsi við Helluhraun í Hafnarfirði. Eldurinn í iðnaðarhúsnæðinu reyndist enginn en töluverður eldur var í íbúðarhúsinu við Öldugötu.

Slökkviliðið sendi tvo dælubíla á vettvang og eru slökkviliðsmenn enn að störfum á vettvangi. Ekki er vitað að svo stöddu um slys á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×