Erlent

Sló til banamanns dóttur sinnar í dómssal

Atli Ísleifsson skrifar
Dwayne Smith, faðir Jamilu, átti að lesa upp yfirlýsingu þegar hann sló skyndilega til Thomas.
Dwayne Smith, faðir Jamilu, átti að lesa upp yfirlýsingu þegar hann sló skyndilega til Thomas.
Til átaka kom í dómssal í Wayne-sýslu í síðustu viku eftir að faðir sló til banamanns dóttur sinnar.

Átökin náðust á myndband þar sem til stóð að dæma Jasmine Gordon, móður hinnar þriggja ára Jamila Smith, og kærasta hennar, Clifford Thomas, vegna dauða Jamilu, en hún lést eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu þeirra.

Dwayne Smith, faðir Jamilu, átti að lesa upp yfirlýsingu þegar hann sló skyndilega til Thomas.

Smith var vísað úr dómssal en í frétt Sky segir að hann sleppi við ákæru.

Sjá má atkvikið á myndbandinu að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×