Innlent

Slitnaði upp úr viðræðum SALEK-hópsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglumenn eru ein þeirra stétta sem nú berjast fyrir bættum kjörum.
Lögreglumenn eru ein þeirra stétta sem nú berjast fyrir bættum kjörum. vísir/pjetur
SALEK-hópurinn svokallaði fundaði í gær um stöðuna á vinnumarkaði en upp úr viðræðunum slitnaði í gærkvöldi. Hópurinn er samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga en í honum sitja ríkissáttasemjari og fulltrúar samtaka á vinnumarkaði, bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfinga.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins stóðu vonir „til þess að samkomulag næðist sem stuðlaði að varanlegri aukningu kaupmáttar launafólks og kæmi í veg fyrir að verðbólga fari úr böndum í kjölfar mikilla launahækkana á almennum og opinberum vinnumarkaði á árinu.“

Í tilkynningu SA segir að slitnað hafi upp úr viðræðunum þar sem heildarsamtök opinberra starfsmanna hafi ekki treyst sér til „að vinna áfram saman á þeim grundvelli sem var til umræðu. Hætta er því á að umsamdar kauphækkanir muni á endanum einungis skila mikilli verðbólgu, lækkun gengis krónunnar, hærri verðtryggðum skuldum og hærri vöxtum sem eru nú þegar margfalt hærri en í nágrannalöndunum.“

Haft er eftir Þorsteini Víglundssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að það valdi miklum vonbrigðum að slitnað hafi upp úr viðræðunum.

„Það má öllum vera ljóst að grafalvarleg staða blasir við í efnahagsmálum ef ekki tekst að koma böndum á þær miklu launahækkanir sem hafa verið á vinnumarkaðnum undanfarna mánuði, eins og skýrt kemur fram í niðurstöðu hagfræðinga allra samtakanna sem tekið hafa þátt í vinnu SALEK-hópsins. Haldi stéttarfélög opinberra starfsmanna áfram að halda á lofti kröfum um sérstakar launahækkanir umfram það sem samið hefur verið um á almennum markaði munu allir tapa . Það er sameiginleg ábyrgð allra samningsaðila að ná skynsamlegri niðurstöðu til að forða efnahagslegu stórslysi sem að óbreyttu stefnir í.“




Tengdar fréttir

Hækkun á móti skertum lífeyri

Samræming lífeyrisréttinda blandast í áætlanir um upptöku nýs vinnumarkaðslíkans að norrænni fyrirmynd.

Lífeyrir og kjaraþróun koma í veg fyrir sátt

Fulltrúar í svonefndum SALEK-hópi eru sammála um ágæti þess að taka hér upp samningafyrirkomulag að norrænni fyrirmynd. Til að feta sig inn í þá mynd þurfi að stöðva það höfrungahlaup sem í gangi sé á vinnumarkaði.

Fundur í dag hjá ríki og BSRB

Draga kann til tíðinda í deilu þriggja stærstu félaga BRSB við ríkið á fundi í dag. Undirritun fyrirliggjandi samnings við SGS og Flóans var frestað. Nái BSRB-félögin ekki samningi hefjast verkföll í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×