Lífið

Sleppti ræktinni í tvo og hálfan mánuð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. vísir/getty
Leikkonan Jennifer Aniston leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Cake sem tekin verður til almennra sýninga í janúar á næsta ári. Hún þurfti að fitna aðeins fyrir hlutverkið í myndinni.

„Ég æfði ekkert í tvo og hálfan mánuð. Ég hætti að æfa og hætti að passa eins mikið upp á mataræðið og ég geri vanalega. Ég lifði samt heilsusamlegu lífi en ég leyfði mér meira,“ sagði Jennifer á viðburði þar sem hún kynnti myndina fyrir stuttu.

Cake var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september og telja margir gagnrýnendur líklegt að Jennifer fái tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir frammistöðu sína. 

Í myndinni leikur Jennifer bitra konu sem heillast af sjálfsvígi konu sem var í sama stuðningshóp og hún. Í öðrum hlutverkum eru Anna Kendrick og Sam Worthington.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×