Lífið

Sleppa sér í stuðinu í Eurovision hot-jóga

adda soffía ingvarsdóttir skrifar
Elín Rós Bjarnadóttir og Sólveig Þórarinsdóttir eru tilbúnar í tímann á laugardag.
Elín Rós Bjarnadóttir og Sólveig Þórarinsdóttir eru tilbúnar í tímann á laugardag. Fréttablaðið/GVA
„Okkur datt þetta bara í hug og fannst þetta brjálæðislega góð hugmynd!“ segir Guðbjörg Friðriksdóttir, hjá Sólum jógasetri. Á laugardag halda þær í fyrsta sinn pop-up jóga og er þemað Eurovision.

„Sú sem stjórnar tímanum er mikill Eurovision-aðdáandi. Þetta verður venjulegur hot-jógatími, en með allskonar Eurovision-lögum,“ segir hún. Þær lofa hressum jógatíma og ætla að blanda saman alls kyns tegundum af lögum fyrir tímann. „Þetta verður ekki bara róleg tónlist, eins og er yfirleitt í jóga.

Við ætlum að spila íslenskt, erlent, rólegt og hresst allt í bland. Svo er aldrei að vita nema að fólk vilji sleppa sér í dansi í lok tímans, það er bara allt leyfilegt,“ segir hún og hlær.

Tíminn er opinn fyrir alla. „Það eru allir velkomnir og þú þarft ekkert að vera brjálaður Eurovision-aðdáandi til þess að koma og hafa gaman.“

Frítt er fyrir meðlimi stöðvarinnar, en aðgangseyrir er 2.200 krónur fyrir aðra. Sólir jógastöð er til húsa á Fiskislóð 53-55.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×