Heilsa

Sleipiefni skal smakka

heilsuvísir skrifar
Sleipiefni geta gert kynlíf ánægjulegra fyrir alla viðstadda, óháð kynfærum og hvernig kynlíf er stundað.

Það eru til ýmsar gerðir af sleipiefnum og sumar innihalda ertandi efni, sérstaklega þau sem eru með bragði eða einhvers konar hita eða kæli verkun í. Það er því vissara að fara varlega í slík sleipiefni og smakka áður en er notað og þegar er sett á kynfærin að setja í minna frekar en meira. 

Þá er líka gott að lesa aftan á flöskuna hvort sleipiefnið sé hægt að nota með smokk eða ekki og gott að muna að þau veita enga sæðisdrepandi vörn.

Almenn regla er sú að það sem má fara á kynfæri má fara í munn en ekki öfugt.

Hér smakka þau Sigurvin prestur í Neskirkju og Indíana sálfræðinemi ýmis ólík sleipiefni og af myndbandinu að dæma þá er það rétt eins og með bragðlauka, þá sýnist hverjum sitt í þeim efnum.

Frekari upplýsingar um sleipiefnin sem eru sýnd í myndbrotinu má nálgast á facebook síðu Siggu Daggar kynfræðings.


Tengdar fréttir

Nuddaðu snípinn!

Ef þú stundar kynlíf með píku þá er mikilvægt að muna eftir snípnum.

Umhverfisvænt kynlíf

Kynlífstæki erum mörg úr óumhverfisvænum efnum auk þess að mögulega skaðleg rotvarnarefni eru í mörgum sleipiefnum, hér eru nokkrar leiðir til að gera kynlífið betra fyrir þig og umhverfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×