Innlent

Slegist um annað og þriðja sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Borgarstjórnarkosningar verða í lok maí. Vísir/Anton
Flokksval Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnarkosninga fer fram 10. febrúar næstkomandi. Samfylkingin á fimm borgarfulltrúa af fimmtán en borgar­fulltrúum verður fjölgað í 23 eftir næstu kosningar sem fara fram 26. maí 2018.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er óskoraður oddviti flokksins og mun væntanlega leiða listann en margir vilja vera í næstu sætum.

Björk Vilhelmsdóttir, sem var í öðru sæti lista flokksins fyrir síðustu kosningar, hætti fyrr á kjörtímabilinu og því má segja að annað sætið sé óskipað. Það sæti vilja næstu konurnar á listanum báðar fá; Kristín Soffía Jónsdóttir sem var í fjórða sæti og Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður flokksins, sem var í sjötta sæti. Hún náði ekki kjöri í kosningunum en kom inn sem borgarfulltrúi eftir að Björk Vilhelmsdóttir sagði af sér.

Samkvæmt heimildum mun nokkur styr standa um varaformann flokksins. Hún var sjálfkjörin í embætti varaformanns á flokksstjórnarfundi skömmu eftir að Logi Einarsson tók við formanns­keflinu af Oddnýju Harðardóttur eftir mikið fylgishrun í haustkosningunum 2016. Heiða mun hafa sóst eftir forystusæti í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir nýliðnar alþingiskosningar en vilji flokksins til endurnýjunar í Reykjavík virðist ekki hafa náð til hennar enda var hún ekki á lista.

Kristín Soffía Jónsdóttir, sem hefur einnig hug á öðru sæti, hefur heldur ekki verið óumdeild en deilur risu nú í haust um kjörgengi hennar í borgarstjórn vegna þess að hún flutti lögheimili sitt til Danmerkur á meðan hún var í fæðingarorlofi.

Athygli vekur að Kristín Soffía hefur ekki tekið sæti í stjórn Strætó en Heiða Björg leysti hana af á þeim vettvangi á meðan Kristín var í fæðingarorlofi og virðist gera það enn.

Á vef Reykjavíkurborgar má sjá að Kristín Soffía situr eingöngu í borgarráði en Heiða Björg situr í umhverfis- og skipulagsráði, velferðarráði, ofbeldisvarnarnefnd, stjórn Strætó bs. og í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar.

grafík/gummi


Það kom ýmsum á óvart þegar ákveðið var að röðun frambjóðenda á lista skyldi fara fram með prófkjöri en heimildir blaðsins herma að baráttumenn um þriðja sæti listans hafi beitt sér mjög fyrir þeirri leið. Það stefnir í harða baráttu um þriðja sætið og munu minnst fjórir karlar keppa um sætið. Hjálmar Sveinsson vill gjarnan sitja sem fastast í sínu sæti en Skúli Helgason og Magnús Már Guðmundsson vilja báðir færa sig ofar á listann og ná þriðja sætinu. Sabine Leskopf sýnir hins vegar mikinn metnað og hyggst sækjast eftir þriðja til fjórða sæti en hún var í níunda sæti fyrir síðustu kosningar. Dóra Magnúsdóttir sem var einu sæti á undan Sabine síðast stefnir einnig á fjórða sætið. Nokkrir nýliðar gefa kost á sér í fremstu röð og hyggst Aron Leví Beck, formaður Hallveigar – ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, blanda sér í baráttuna um bronsið. 

Þá mun Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður ætla að sækjast eftir fjórða til sjötta sæti og einnig hefur heyrst að Sverrir Bollason ætli sér í framboð og vilji sæti framarlega á lista. Framboðsfrestur rennur út næsta fimmtudag, 25. janúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×