Innlent

Sleginn með glasi í andlitið

Vísir/Pjetur
Tveir menn sitja í fangaklefa lögreglunnar á Akureyri eftir líkamsárás í nótt. Mennirnir sem eru á þrítugsaldri réðust að þeim þriðja á fjórða tímanum í nótt á veitingastaðnum Kaffi Amor svo hann þurfti aðhlynningu á sjúkrahúsi.

Fórnarlambið sem er á sama aldri og mennirnir skarst á andliti þegar annar mannanna sló hann með glasi. Mennirnir voru þó nokkuð ölvaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×