Innlent

Slasaður maður yfirgaf Hressó á hjóli

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá Hressingarskálanum
Frá Hressingarskálanum
Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu ósk­ar eft­ir vitn­um að at­viki sem átti sér stað þann 1. júní um klukk­an 02:00 fyr­ir fram­an Hress­ing­ar­skál­ann í Aust­ur­stræti. Lítið er vitað um málsatvik að svo stöddu en þó er vitað að slasaður maður hjólaði burt af vettvangi.

Lög­regl­an biðlar til allra þeirra sem kunna að vita eitthvað um málið að hafa samband, annað hvort í síma 444-1000 eða með einkaskilaboðum á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Færslu lögreglunnar má sjá hér að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×