Innlent

Slasaður ferðamaður neitaði að gefa deili á sér

Gissur Sigurðsson skrifar
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Lögreglu var tilkynnt um slasaðan mann á Vegamótastíg í Reykjavík laust fyrir klukkan tvö í nótt, og reyndist hann vera erlendur ferðamaður í mjög annarlegu ástandi. Hann hafði í hótunum við lögreglumenn, og neitaði að gefa deili á sér, en lögreglan kallaði á sjúkrabíl.

Sjúkraflutningamennirnir gerðu að sárum mannsins á staðnum, en talið er að hann hafi hlotið sárin við að falla í götuna, fremur en að ráðist hafi verið á hann.  Hann er vistaður í fangageymslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×