Innlent

Slapp ómeiddur eftir þriggja metra fall: „Það er kraftaverk að barnið sé óhult“

ingvar haraldsson skrifar
Helga Þórey Júlíudóttir segir ótrúlegt að tveggja og hálfs árs gamall sonur hennar hafi sloppið ómeiddur eftir 3,2 metra fall.
Helga Þórey Júlíudóttir segir ótrúlegt að tveggja og hálfs árs gamall sonur hennar hafi sloppið ómeiddur eftir 3,2 metra fall. vísir/Andri Marinó
„Maður er enn í sjokki. Það er kraftaverk að barnið sé óhult,“ segir Helga Þórey Júlíudóttir, móðir hins tveggja og hálfs árs gamla Róberts Ómars Þorsteinssonar sem féll 3,2 metra milli áhorfendapalla í Smáranum á Póst-móti Breiðabliks í körfubolta í gær. Betur fór en á horfðist og Róbert gekk sjálfur undan stúkunni ómeiddur.

Þó segir Helga að foreldrarnir hafi óttast það versta og hafi hringt á neyðarlínuna. Fjölskyldunni var ekið í sjúkrabíl niður á bráðamóttökuna. „Þetta er svo rosalega hátt fall og hann kvartaði í maganum á leiðinni upp á spítala. Við óttuðumst að það hefði sprungið milta eða hann hefði einhverjar innri blæðingar,“ segir Helga.

Vísir/Andri Marinó
Mildi að ekki fór verr

Róbert féll milli tveggja palla í stúkunni að sögn Helgu. „Hann var efst í stúkunni með pabba sínum. Það eru tvenns konar pallar í stúkunni af sitt hvorri gerðinni og gat á milli þeirra og þar datt hann niður,“ segir Helga og þakkar fyrir að ekki hafi farið verr.

„Það er algjör mildi að hann hafi sloppið ómeiddur. Það er fullt af stöngum þarna niðri og svo sjálf grindin sem heldur pöllunum uppi. Sem betur fer var hann í þykkri dúnúlpu og með húfu. Hann hafði þrjóskast við og ekki viljað fara úr úlpunni,“ segir Helga.

Helga segir að Róbert hefði vel getað dottið skömmu áður. „Það var járngrind við endann á stúkunni alls staðar nema efst í stúkunni, þar var engin járngrind. Pabbi hans hljóp á eftir honum og stoppaði hann. Hann hefði getið dottið niður þar líka,“ segir Helga.



Vonandi þarf ekki verra slys svo eitthvað verði gert


Helga vill að gripið verði aðgerða til að koma í veg fyrir að sambærileg slys endurtaki sig. „Það þarf að taka allar stúkur landsins í gegn. Ég held að margir átti sig ekki á hættunni því engin fullorðin geti dottið þarna niður.  Hugsunin er oft hvað er þetta hættulegast fyrir fullorðna manneskju. Það má ekki verða að það gerist ekkert því barnið kom heilt út úr þessu. Vonandi þarf ekki annað og miklu alvarlegra slys svo eitthvað verði gert. Þetta er örugglega svona í mörgum stúkum og oft mót þar sem það eru ungir krakkar keppa og lítil systkini að fylgjast með,“ segir Helga.

Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×