Lífið

Slapp á ótrúlegan hátt út úr skotti ræningja síns

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosalegt að sjá.
Rosalegt að sjá.
Ótrúlegt atvik átti sér í Alabama á dögunum þegar kona náði að sleppa frá ræningja sínum á bílastæði á Bessemer bensínstöð.

Ræninginn lagði bíl sínum á bílastæðinu og rölti inn á bensínstöðina til þess að fara í hraðbanka.

Á þeim tíma hefur konan greinilega unnið hörðum höndum að því að opna skottið innanfrá. Svo þegar maðurinn ók af stað af bílastæðinu opnaðist skottið og konan náði að sleppa. Myndbandið hér að neðan segir í raun allt sem segja þarf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×